Sótt er um leyfi til að leiðrétta BN046663 þannig að eignarhald í skráningartöflu breytist og geymsla 0003 verður í eigu íbúðar 0101 í húsinu á lóð nr. 25 við Tómasarhaga. Samþykki meðeigenda dags.19. mars 2014 fylgir. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.