Tengibygging
Nesvegur 76 01.51.702.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Eldur Ólafsson
Byggingarfulltrúi nr. 779
20. maí, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tengibyggingu úr áli og gleri á steyptum undirstöðum milli íbúðarhúss og vinnustofu (bílskúrs) auk smávægilegra útlitsbreytinga á einbýlishúsi á lóð nr. 76 við Nesveg.
Samþykki meðlóðarhafa ódags. fylgir erindi.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. apríl 2014 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. maí 2014.
Stækkun: 10,7 ferm., 29,2 rúmm.
Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 105895 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023345