Sótt er um leyfi til að endurbæta og byggja við friðuð hús við Aðal- og Vallarstræti skv. deiliskipulagi sem samþykkt var í júlí 2013 fyrir íbúðir og þjónustustarfsemi, framkvæmd þessi er fyrsti hluti uppbyggingar á Landsímareit á lóð nr. 7 við Aðalstræti. Meðfylgjandi er bréf verkfræðings dags. 28. mars 2014. Stærðabreytingar. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.