Spurt er hvort leyft yrði að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu sem er kjallari, fjórar hæðir og rishæð með samtals tíu íbúðum á lóðinni nr. 28 við Barónsstíg.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum deiliskipulags og með vísan til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.