Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og svalahurð á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 33 við Reykjavíkurveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. júní 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 8. maí til og með 5. júní 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 95 ferm., 228,6 rúmm.
Gjald kr. 9.500