Sótt er um tímabundið leyfi frá 1.5. - 15.9. 2014 til útiveitinga fyrir 15 gesti, sbr. erindi BN046348, í garði við veitingahús í flokki III á lóð nr. 21 við Laugaveg. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Allur frágangur á svæði útiveitinga er á ábyrgð umsækjanda og ber honum að sjá til þess að allt rusl sé þrifið jafnóðum og fjarlægt. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.