Fyrirspurn
Spurt er hvort heimilt sé að byggja bílaplan og færa ljósastaur við austurgafl fjölbýlishúss á lóð nr. 28-30 við Blönduhlíð.
Útskrif úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. maí 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. maí 2014 og umsögn samgöngustjóra dags. 15. maí 2014.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á húsi.