Hækka mæni - bæta við kvistum
Brekkustígur 10 01.13.430.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Margrét Unnur Sigtryggsdóttir
Fannar Ólafsson
Byggingarfulltrúi nr. 790
19. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að hækka mæni og bæta við kvistum á íbúðarhús á lóð nr. 10 við Brekkustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. ágúst 2014, umsögn Borgarsögusafns dags. 5. ágúst 2014 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 27. júní 2014 fylgja erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 14. júlí til og með 11. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 24,7 ferm., 60,6 rúmm.
Gjald 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samanber þó skilyrði og leiðbeiningar í umsögn Minjastofnunar dags. 27. júní 2014.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100356 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007888