Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum sbr. erindið BN046016 vegna lokaúttektar á húsinu á lóð nr. 9 við Engjateig. Bréf frá hönnuði dags. 13. maí 2014 og tölvupóstur dags. 12. maí 2014 fylgir. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.