Sótt er um leyfi til að skrá áður gerða íbúð sem "ósamþykkta íbúð" í rými 0001 í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 52 við Grettisgötu. Erindi fylgir samþykki meðeigenda á teikningum, þinglýst afsal dags. 5. maí 1997, íbúðarskoðun dags. 18. september 2014 og virðingargjörð dags. 18. nóvember 1976. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.