Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN046022 þannig að 2. hæð og að hluta á 1. hæð breytast lítilega að innan, koma fyrir svölum og sólskála á suður-austur hlið og nýtt vindfang í tengslum við aðalinngang í suð-vestur hlið hússins á lóð nr. 16 við Grandagarð. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24.júní 2014 fylgir. Stækkun sólskála: A- rými 15,4 ferm., 41,6 rúmm. Stækkun vindfang B rými 10 ferm., 26 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.