Sótt er um leyfi til að byggja flóttastiga á bakhlið og breyta innra skipulagi á 1. 2. og 3 hæð, fjarlægð eru eldhús, borðstofa og dagstofa og innréttuð herbergi í gistiheimili á lóð nr. 6B við Lækjargötu. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. A01, A02 og A03 dags. 7. ágúst 2014.