takmarkað byggingarleyfi - BN046396
Sæmundargata 15-19 01.63.130.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 786
15. júlí, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um takamarkað byggingaleyfi til að steypa plötu, veggi og súlur 4. hæðar ( þakhýsi) ásamt tæknirými þar fyrir ofan fyrir kæliblásara. Á 4. hæðinni eru skrifstofur ásamt stoðrýmum og mötuneyti starfsmanna Hátækniseturs Alvogen Biotech í Vatnsmýrinni, á lóðinni nr. 15-19 við Sæmundargötu sbr. erindi BN046396.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.