Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð þannig að burðarvirki breytist, salerni stækkuð til að koma fyrir aðgengi fyrir alla og komið verður fyrir hringstiga og pallalyftu á milli kjallara og 1. hæðar húss á lóð nr. 3 við Suðurgötu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. júlí 2014 fylgir erindi. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.