Fyrirspurn
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans í Reykjavík á nýju mæliblaði fyrir lóðina Korngarða 13A spenni- og dreifistöð, mæliblaðið er í samræmi við deiliskipulag Klettasvæðis sem samþykkt var hjá Umhverfis- og skipulagsráði 19. mars 2014. Um er að ræða nýja lóð á Klettasvæði og er lóðin tekin úr óútvísuðu landi Faxaflóahafna sf. í Sundahöfn.