Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á mhl. 01 rými 0102 og 0202 og gera það að séreign í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 6 við Hamarshöfða. Kaupafsal dags. 15. mars. 2014 fylgir erindi ásamt samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt. Stækkun millipalls: 53,1 ferm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.