Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka kvist og byggja svalir við hann, stækka aðaltröppur með palli, breyta stiga milli kjallara og neðri hæðar, koma fyrir salernum og böðum í tveim svefnherbergum og tveim vinnuherbergjum í kjallara, breyta inntaki og endurnýja heimtaugar og heimaæðar í húsinu lóð nr. 29A við Ránargötu.
Bréf frá Nordik Lögfræðiþjónustu dags. 9. september 2014 og umsögn frá Minjastofnun Íslands dags. 18 september 2014 fylgir.
Stækkun rúmm. 8,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500