Viðbygging
Barónsstígur 45A 01.19.300.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 807
16. desember, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja útisundlaug, 8,5*25 metra, með nýju anddyri, búningsaðstöðu og tæknirými, með heitum pottum, vaðlaug og rennibraut við núverandi Sundhöll Reykjavíkur á lóð nr. 45a við Barónsstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. desember 2014 fylgir erindinu, einnig brunahönnun frá Verkís dags. í september 2014.
Stækkun: 1.388,2 ferm., 5.583,4 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

Landnúmer: 102530 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005092