Sótt er um leyfi til að taka í notkun óútgrafið rými til að stækka kjallaraíbúð 0001 í húsinu nr. 72 á lóð nr. 60 til 76 við Flúðasel. Samþykki meðlóðarhafa nr. 70 og nr. 72 dags. 1. okt. 2014 og umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 2. október 2014. Stækkun vegna notkunar á óútgröfnu rými: 22,8 ferm., 61,6 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.