Spurt er hvort leyft yrði að byggja kvist eins og sýnt er á meðfylgjandi skissu af einbýlishúsi á lóð nr. 22 við Faxaskjól. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2014.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. Með vísan til umsagnar og leiðbeiningar skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2014.