Sótt er um samþykki á stækkun millilofts í rými 0105 í atvinnuhúsi á lóð nr. 3 við Klettháls. Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla VSI dags. 18. nóvember 2014. Stækkun: 121,2 ferm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.