Sótt er um leyfi til að innrétta aðstöðu fyrir ræktun á baunaspírum í rými 0105 í verslunarhúsi á lóð nr. 2-6 við Lóuhóla. Erindi fylgir staðfesting Matvælastofnunar dags. 18. desember 2014. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.