Sótt er um leyfi til að sameina skrifstofurými kjallara og 1. hæðar, opnað verður dyraop í burðarvegg og fjarlægður hlaðinn veggur í kjallara í húsinu Grófin 1 á lóð nr. 4 við Vesturgötu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. október 2014 og bréf frá hönnuði dags. 25. nóvember 2014 fylgir erindi. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um sameiningu fasteigna ásamt nýjum lóðarskiptasamningi eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.