Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja hús sem fyrir er og byggja steinsteypt hús, fjórar hæðir og kjallara með verslun á jarðhæð og í kjallara og sex íbúðum á 2. til 4. hæð á lóð nr. 30 við Klapparstíg.
Erindi fylgir greinargerð hönnunarstjóra, yfirlýsing um hönnun raflagna, yfirlýsing um hönnun lagna og burðarvirkis og útreikningur á varmatapi dags. 5. janúar 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015.
Niðurrif: 166 ferm., 341,8 rúmm.
Nýbygging: Kjallari 272,8 ferm., 1. hæð 214,7 ferm., 2. hæð 183,8 ferm., 3. og 4. hæð 176,6 ferm.
Samtals 861,9 ferm., 3.076,1 rúmm.
Gjald kr. 9.500