Fyrirspurn
Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta bruggsmiðju og veitingastað í fl. III í rými 0103 og 0102 í húsinu á lóð nr. 8 við Grandagarð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2015.
Tölvupóstur frá umsækjanda dags. 14. jan. 2015 og teikningar hvar staðsetning á að vera.