Sótt er um leyfi til að innrétta gistiheimili í flokki II með níu gistirýmum sem verður rekið í tengslum við gistiheimili sem fyrir er á lóð (í mhl. 01) og til að byggja svalir á suðurgafl 3. hæðar og á austurhlið 2. og 3. hæð húss á lóð nr. 2 við Einholt. Jafnframt er erindi BN048198 dregið til baka. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.