Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN031092, breytt er eignaskiptum og innra skipulagi í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Hólmgarð. Samþykki meðeigenda dags. 21. janúar 2015 fylgir erindi. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.