Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta vinnustofur í kjallara og hvort leyft yrði að hækka lyftuhús og stigahús innan marka deiliskipulags í fjölbýlishúsi á lóð nr. 61 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. febrúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2015.