Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem kemur fram stækkun á kjallara þar sem tekið er í notkun óútgrafið rými, koma fyrir gluggum og byggja viðbyggingu á suðvesturhlið á húsi á lóð nr. 16 við Hléskóga.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. febrúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2015 og greinagerð vegna breytinga á teikningum og húsnæði frá Bjarka V. Halldórssyni dags. 17. maí 2015.
Stækkun: 128,7 ferm., 339,2 rúmm.
Gjald kr. 9.823