Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir vörulyftu og auka gestafjölda úr 49 í 57, einnig er gerð grein fyrir áður gerðu vindfangi í veitingahúsi á lóð nr. 60 við Laugaveg. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.