Fluttningshús - Barónsstígur 28
Þrastargata 1 01.55.312.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Guðmundur Björn Lýðsson
Byggingarfulltrúi nr. 819
17. mars, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að flytja friðað einbýlishús úr timbri af lóð nr. 28 við Barónsstíg, koma því fyrir á á steyptum kjallara og byggja steinsteypta viðbyggingu á vesturgafl á lóð nr. 1 við Þrastargötu.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014 og Minjastofnunar Íslands dags. 4. febrúar 2015.
Stærð: 116,1 ferm., 330,1 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.