Sótt er um leyfi til að byggja nýtt stigahús með lyftu fyrir hreyfihamlaða og sameiginlega innbyggða kalda sorpgeymslu í staðin fyrir flóttastiga, stigahús verður aðalinngangur fyrir 2. hæð, færa bílastæði fyrir hreyfihamlaða á baklóð fært að stigahúsinu og breyta smávægilega á 1.hæð í húsinu á lóð nr. 10 við Fiskislóð. Bréf frá hönnuði þar sem hann gerir grein fyrir breytingum og sækir um fá leyfi frá byggingareglugerð 112/2012 6.4.12 gr. 7 dags. 19. febrúar 2015 Tölvupóstur frá hönnuði með samþykkt frá faxaflóahöfnum dags. 26. febrúar 2015 fylgir. Stækkun húss: 76,8 ferm., 267,5 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.