Takmarkað byggingarleyfi
Friggjarbrunnur 53 02.69.310.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 817
3. mars, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi vegna aðstöðusköpunar og jarðvinnu að Friggjarbrunni 53 sbr. erindi BN048621.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.