Sótt er um leyfi til að breyta tannlæknastofu í rými 0104 í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25 við Sólheima. Jákvæð fyrirspurn BN046561 dags. 8. október 2013 og yfirlýsing dags. 8. apríl 2015 frá húsfélagi Sólheima 25 um samþykki þess fylgir erindi. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.