Sótt er um leyfi til að koma fyrir björgunarsvölum fyrir íbúð 0201 og 0202 á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 26 við Freyjugötu. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 29. apríl 2015 og bréf frá eigendum Njarðargötu 49 dags. 6. maí 2015 þar sem umsóttum björgunarsvölum er mótmælt. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 0.01 og 0.02, dags. 18. maí 2015. Bréfi eigenda Njarðargötu 49 vísað til skrifstofu sviðsstjóra.