Fyrirspurn
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja stakstætt bakhús 35 ferm að grunnfleti með rishæð, eignarhald verður tengt við íbúð á jarðhæð og verður notað sem íbúðargisting á lóð nr. 15 við Bergþórugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.