Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi íbúðar 0301 og byggja svalir á suðurhlið (bakhlið) þakhæðar,einnig er sótt um leyfi til að byggja svalir og stiga ofan í garð frá íbúð á 1. hæð fjölbýlishússins á lóðinni nr. 16 við Baldursgötu. Jafnframt er erindi BN047413 dregið til baka. Meðfylgjandi er yfirlýsing hönnunarstjóra dags. 15.4. 2015, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8.6. 2015 og útskýring á eignarhaldi dags. 8.6. 2015. Gjald kr 9.823
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 001A, 002A, 003A og 004A, dags. 17. mars 2015.