Vísað er til yfirlýsingar embættis byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. september 1998, um að þinglýst skuli þeirri kvöð á lóðina Hraunbæ 107, matshluta 01, að lóðinni sé úthlutað til byggingar íbúðarhúsa fyrir aldraða og að íbúðir í húsi nr. 107 við Hraunbæ, matshl. 01, skuli allar vera í eigu eins aðila. Yfirlýsingunni var þinglýst sem kvöð á lóðina 14. september 1998, sbr. skjalanúmer 411-B-015936/1998.
Íbúðir í húsinu nr. 107 við Hraunbæ, fastanr. 223-9155 til 223-9183, 223-9185, 223-9187 til 223-9188 og 225-8077 til 225-8081, hafa frá byggingu aldrei verið notaðar sem íbúðir fyrir aldraða. Fyrir hönd eiganda fasteignarinnar,
Leiguafls slhf.
, kt. 480514-0680 er hér með farið á leit að embættið aflétti kvöð samkvæmt framangreindri yfirlýsingu af fasteigninni.
Umsögn skrifstofu sviðsstýru dags. 20. maí 2015 fylgir erindinu.