Sótt er um samþykki á þegar framkvæmdum breytingum sem felast í að teknar eru í notkun geymslur í kjallara og undir bílgeymslu, gluggar hafa verið settir á geymslur í kjallara, verönd og skjólveggir eru á baklóð og þar er sótt um leyfi fyrir heitum potti við íbúðarhús á lóð nr. 19 við Silungakvísl. Stærðir stækkunar: 10 ferm., 64 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.