Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 23.12.2008 var samþykkt umsókn um leyfi til að rífa viðbyggingu við gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, matshluta 10, skýli 176m2. Endurnýjun á umsókninni var samþykkt þann 26.01.2010.
Nú hefur komið í ljós að ekki var um matshluta 10 að ræða, heldur óskráða byggingu sunnan við gamla flugturninn. Niðurrif hefur verið staðfest.