Breytingar úti og inni, breytt notkun
Fríkirkjuvegur 11 01.18.341.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 833
30. júní, 2015
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og ráðstefnusal þar sem sótt verður um tækifærisleyfi fyrir hvern viðburð í kjallara og á 1. hæð, lækkuð verður gólfplata í hliðarsal, taka niður svið í sal í sömu hæð og gólfplatan, koma fyrir salernum, koma fyrir matarlyftu/þjónustulyftu við eldhús og fólkslyftu frá kjallara upp á 1. hæð ásamt öðrum breytingum sem nefndar eru í byggingalýsingu á teikningu, innréttuð verður íbúð á 2. hæð og í risi, fjarlægður verður stigi á milli 1. og 2 hæðar og hann geymdur, breyta núverandi útitröppum við suðurgafl, koma fyrir lyftu vegna aðkomu hreyfihamlaða og fjölga þakgluggum á austanverðu úr 2 í 6 stykki í húsinu á lóð nr. 11 við Fríkirkjuveg.
Bréf frá hönnuði dags. 16. júní 2015, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 9. júní 2015, bréf frá Forsætisráðuneytinu dags. 12 maí 2015 og Greinargerð hönnuðarstjóra dags. 16. júní 2015 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.823
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsækjandi skal afla umsögn Minjastofnunar Íslands.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101973 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010773