Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð og ris, innrétta nýja íbúð í risi, byggja svalir á suðurgafli 1. 2. 3. hæðar, gera nýjan inngang og innrétta íbúðarherbergi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 4 við Mímisveg. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa v/fsp. um sama erindi dags. 5. mars 2014. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015. Stækkun: 100,8 ferm., 241,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015.