Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að hefja jarðvegsframkvæmdir á byggingareit nr. 5 á lóðinni Austurbakki 2. Tilgangurinn er að kanna hvort þar sé að finna olíumengaðan jarðveg í byggingarstæðinu, sbr. vísbendingar um slíkt í tilraunaborholum frá árinu 2006.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.