Sótt er um leyfi til að gera op í burðarvegg og sameina íbúðir 0807 og 0808 í eina íbúð, 0807, á 8. hæð í fjölbýlishúsinu Mánatún 13 á lóð nr. 1-3 við Sóltún/1-17 við Mánatún. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 27.7. 2015, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28.7. 2015 og hljóðvistargreinargerð dags. júní 2015. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.