Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 0102 og 0201 úr lagerhúsnæði í geymsluhúsnæði og innrétta minni geymsluhólf í mhl. 02 í húsinu á lóð nr. 8 við Tunguháls. Bréf frá hönnuði dags. 14 sept. 2015 og kaupsamningar af Tunguhálsi 8 fyrir eingarhluta 0101 og 0102 dags. 17. júlí 2015 Samþykki Efnisviðs ehf. dags.16. okt. 2015 fylgir. Gjald kr. 9.823 + 9.823
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.