Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048059 þannig að breytt er innra skipulagi á öllum hæðum, stigagangur er færður þannig að hlutar af gluggum að Tryggvagötu breytast og stærð húss er endurreiknuð á lóð nr. 19 við Hafnarstræti. Skýrsla brunahönnuðar dags. 10. nóvember 2015 fylgir erindi. Stækkun: 86,4 ferm., 40,9 rúmm. Stærð nýs hús: 1.959,2 ferm., 6.802,4 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.