Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á suður og norður hlið og anddyri á vesturgafl einbýlishúss á lóð nr. 89 við Háagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2016 og bréf þar sem óskað er grenndarkynningar á byggingarleyfisumsókn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. apríl 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. apríl 2016. Erindið var grenndarkynnt frá 25. apríl til og með 23. maí 2016 en þar sem samþykki hagsmundaraðila barst 28. apríl er erindið nú lagt fram að nýju.
Stækkun: 10,2 ferm., 4,9 rúmm.
Gjald kr. 10.100