Stofugluggi 1.hæð - hurð 2.hæð
Hlíðargerði 14 01.81.540.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Einar Jón Snorrason
María Björk Guðmundsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 871
19. apríl, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta stofuglugga þannig að sett verður rennihurð út á svalir á suðurhlið 1. hæðar, núverandi svalahurð verður lokuð, lokuð verður einnig svalahurð á 2. hæð, stigi frá anddyri upp á 2. hæð verður fjarlægður og eldhús stækkað í húsinu á lóð nr. 14 við Hlíðargerði.
Stækkun vegna lokun stigagats: 1,4 ferm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108009 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018853