Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð, kjallara og á 5. hæð, breyta kvistum að Laugavegi og gera gleryfirbyggingu á flóttagang á bakhlið, sjá erindi BN050215, í veitingahúsi og hóteli á lóð nr. 28 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júní 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2016, brunahönnun uppfærð 25. apríl 2016 og bréf hönnuðar dags. 9. júní 2016. Glergangur, B-rými: 7,9 ferm., 46 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Bréfi hönnuðar dags. 9. júní 2016 vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.