Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt níu íbúða fjölbýlishús, þrjár hæðir og kjallara, steinsteypt og einangrað að utan og klætt málmklæðningu, með bílgeymslu fyrir 9 bíla á lóð nr. 114 við Úlfarsbraut. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 15. mars 2016 vegna túlkunar á byggingareit efri hæða. Stærð A-rými: 1.305,6 ferm., 4.082,9 rúmm. B-rými: 152,6 ferm., C-rými: 22 ferm. Gjald kr. 10.100
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.